Þóra Litla

--

09.08.2008 15:49:49 / Þóra Elín

long time no blogg!

jæja, allt of allt of langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna inn, svosem ekkert mikið gerst síðan maður skrifaði síðast, nema jú ég er núna held ég bara hætt að vinna í bili, en það kemur endanlega í ljós á mánudaginn þegar ég heyri í lækninum aftur, en samkvæmt venju er bara allt í róleg heitunum hjá okkur Axel, Brynjar Óli var hjá okkur í 2 vikur rúmar núna í júlí og líka í febrúar, og hann er orðinn enginn smá prakkari! bara æðislegt barn! :lol: Svo eru Trausti og Steinunn og strákarnir steinunnar búin að kíkja hérna í heimsókn til okkar, hlakka bara til að fá fleiri í heimsókn! Annars fórum við aðeins á Siglufjörð um versló, með Vigni og Kittý, það var nú svosem ágætt, fórum á ball með páli óskari á föstudagskvöldinu og svo hékk ég bara inní fellihýsi á laugardagskvöldinu meðan strákarnir fóru út. fín helgi, gerði svo lítið nema að sofa á sunnudag og mánudag, er svo bara í sjúkraþjálfun og svona og vona að tíminn líði nú svolítið hratt þangað til í október!!

en látum þetta vera nó í bili:)
kv. Þóra Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 01:15:06 / Þóra Elín

flutt!

Jæja Gleðileg jól allir saman, ég var fyrir sunnan hjá svölu um jólin með axel mínum, Vignir og Arnar voru líka hjá mömmu sinni þannig við vorum 5 voðalega skrítið að vera ekki hjá mömmu og pabba en meina einhverntimann er allt fyrst, þetta voru frábær jól fékk fullt af flottum gjöfum og ekkert lítið góðann mat! Hamborgarhrigg og frómas:D best sko, svo fórum við i kaffi til Tóta og Guðrúnar og hittum þar restina af bræðrunum ( Tóta, grétar og jóa ) svo á jóladag fórum við til Maggýar í kvöldmat fengum heimareykt hangikjöt sem var mjög gott líka seinna um kvöldið fórum við svo og fórum að spila kana, Axel, Svala, Kittý og Vignir og ég skrifaði stigin og tók við þegar fólk þurfti að hlaupa:D mjög gaman á annann í jólum fórum við í kaffi til Þórunnar og Gústa að sjá nýja húsið inní hafnarfirði, svo til Sillu og Sigurdórs og hundanna og ég get svo svarið það að ég varð vitlaus í svona lítinn sætan hund:D síðan fórum við til Erlu og Maggýar að kveðja, sóttum dótið og brunuðum norður til að mæta í vinnu daginn eftir:)  svo núna um áramótin verðum við hjá foreldrum mínum með bræðrum mínum líka:) svo held ég að Stefanía og Eiríkur og krakkarnir komi í kaffi eftir brennuna og svona vonandi bara verður gott veður til að skjóta upp:D

látum þetta vera nó í bili

Gleðilegt nýtt ár allir saman!

kv. Þóra Elín 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 21:31:44 / Þóra Elín

Flytja?

já! 12 dagar í flutning hjá okkur Axel!!! ohh hvað ég er farin að hlakka til verður alveg yndislegt:D hlakka svo til bara kemst ekki yfir það.! annars er ekkert mikið að frétta núna við erum bara heima í rólegheitunum hérna í tölvunni dreif mig í að klára að skrifa jólakortin í gærkvöldi og pakkaði svo nokkrum jólagjöfum inn núna áðan já það er svona lítið að gera hjá mér akkurat núna! var svo bara að vinna í dag helvíti fínt ! jólalögin í botni og allir í jólaskapi:D svo er frí á morgun og já ég ætla að nota þann dag til þess að SOFA! svo bara vinna næstu viku og sennilega næsta laugardag líka og svo frí þá laugardaginn eftir það og svo þarna vinna þorláksmessu og fara svo bara til reykjavíkur til Svölu og vera þar á aðfangadagskvöld, verður öruglega ótrúlega skrítið að vera ekki með mömmu og pabba um jólin en samt öruglega bara fínt að vera hjá henni og með axel mínum:D anyways er farin að pakka fleiri jólagjöfum inn eða eitthvað skemmtilegt:D

kv. Þóra Elín 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 08:50:36 / Þóra Elín

wee...

Create yours at BlingyBlob.com!
weee!! kominn teljari hvenar ég og axel minn flytjum :D annars er ekkert að frétta ég orðin veik og fín JEIIIIJ:( svona eða þannig ekkert jeij við það:S en jæja best að fara að leggja sig smávegis svona

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 21:59:32 / Þóra Elín

Rvk

Jæja við ákváðum að skella okkur til rvk um helgina fórum í heimsókn til Kittýar og Vignis ( og að sjálfsögðu til Gabríelu Birtu líka og hundanna ) haha helvíti gaman að kíkja til þeirra samkvæmt venju en óvenju gaman núna! hundurinn ( litli ) vildi ÉTA köttinn!:(  en svo vorum við á rúntinum fórum í ikea og eitthvað svona hittum Arnar og Svölu helvíti skemmtileg þessi ferð þó stutt hafi verið:D á laugardagskvöldið hittum við Kristínu smávegis og Trausta smá á laugardeginum dróum greijið strákinn uppúr rúminu þegar hann var ný farin að sofa haha en svo gerðum við voða lítið annað:)

bara allir sem við hittum takk fyrir frábæra helgi;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:04:33 / Þóra Elín

well well

jæja þá er bara EKKERT að frétta nema það er búið að ganga frá öllu sambandi við íbúðina axels og við búin að fá gefeins sófa meira að segja 2 búin að redda sófaborði,eldhúsborði og 4 stólum :D en svo fer maður bara að flytja eftir 23 daga:D

annars lítið að gerast nema VINNA VINNA VINNA:)

kv. þóra 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 04:43:58 / Þóra Elín

Slúður!!!..

hvað er eiginlega málið með allt svona "slúður"? þetta er hlutur sem bara getur ekki farið meira í taugarnar á mér maður má ekki hreyfa á sér rassinn og þá er komin kjaftasaga "*psst* hey veistu hvað hún hreyfði á sér rassinn áðan maður þússt þetta var úber" jésús í stuttumáli sagt ÉG HATA SLÚÐUR! maður veikist í vinnu og þá koma kjafta sögur um mann, maður fer út að labba, það kemur kjaftasaga getur þetta talist eðlilegt?

gaman að sjá hvað ykkur finnst svo endilega commentið!!!

kv. Þóra sem hatar slúður!. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 23:56:12 / Þóra Elín

27 dagar!!!

já! það eru TUTTUGU OG SJÖ DAGAR þangað til ég og ástin mín hann Axel flytjum inní íbúðina sem hann var að kaupa!!! algjör SNILLD komast loksins út frá m&p :D fá þetta æðislegu íbúð ekki of stór en heldur ekki of lítil spurning svo bara að fá sér 2 svefnsófa og dýnur og þá getur familýan kíkt í heimsókn:D  en annars er lítið að frétta nema ég gleymi alltaf að hringja í þessa helvítis lækna! en shit happens svo núna í des verð ég líklega að vinna eins og ég veit ekki hvað lengdur opnunartími og eitthvað svona rugl ætla bara rétt að vona að ég þurfi nú ekki að sitja föst á kassa allann daginn fínt eins og þetta er núna inní búð til hádegis og eftirhádegið á kassanum :D en annars er bara ekkert að frétta nema núna þarf ég að fara að safna saman heimilisföngunum því ég þarf víst að senda jólagjafir og kort!!:D

en jæja svefninn kallar, vinna í fyrramálið:(

kv. Þóra 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 19:37:00 / Þóra Elín

jæja long time no see

já frekar langt síðan ég hef bloggað eitthvað en það er svona. mikið búið að gerast á þessum 1 mánuði endaði smá inná sjúkrahúsi á fimmtudaginn og var þar allann daginn í smávegis aðgerð og svona en það er allt komið í lag líkamlega þar að segja en andlegi parturinn er eftir en það kemur á endanum bara tekur sennilega smátíma að koma því í stand en ég og axel minn búum ss enþá heima hjá mömmu og pabba en erum svona að spá í að fara að finna okkur íbúð svo leiðilegt að búa bara hérna í þessu litla herbergi þó það sé náttúrulega alltaf fínt að vera í fríu fæði og húsnæði sjáiði til en þá er bara svo þrögt hérna að það er erfitt. Ég er að vinna í skaffó núna og hætt í hlíðó ætla bara að halda mér við það að vinna í skaffó áfram, fín vinna svosem en annars er ekkert annað að frétta látum þetta bara komið nó í bili.

kv. Þóra 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 09:14:45 / Þóra Elín

vinna og meiri vinna

já viti menn ég hætti í skólanum og fór að vinna á n1 og svo er ég að vinna í hlíðó aðrahverja helgi mjög fínt og verður öruglega þrusugaman að fá útborgað um mánaðarmótin og svo er Axel minn líka kominn með vinnu hjá Tengli í tölvudeildinni þar bara allt að ganga upp eitthvað:)

ætlaði bara rétt að láta vita að ég sé á lífi

kv. Þóra Elín 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 02:21:53 / Þóra Elín

jæja

jamm jamm og jæja nú er fremur langt síðan ég bloggaði síðast en á þeim tíma hefur nú ekkert gerst eiginlega ekki neam bara að ég er komin í vinnu, og er í skólanum , og að vera bara asnaleg:P er búin að vera heima núna í 2 daga með ælupest ekki aaaaaaalveg í uppáhaldi en þetta bjargast allt sprite er besti vinur minn eins og er svona fyrir utan minn ástkæra unnusta ( Axel minn ) en svo er bara ekkert að frétta .

ákvað aðeins að láta vita að ég væri á lífi en nú er ég líka farin að sofa

skóli í fyrramálið og svona gaman :P

--Þóra  


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 10:52:28 / Þóra Elín

ný síða!!

Já nú er ég komin með nýja síðu með stelpunum úr iðnó www.blog.central.is/the_team er sú síða mun samt áfram vera með þessa síðu líka:)kv. Þóra

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 23:43:25 / Þóra Elín

skólinn byrjaður!!!

jæja það var skólasetning í dag og já ég er flutt norður!!!! og farin í skólann en svo er annars lítið að frétta nema bara ég og Axel erum komin á hondu civic hvíta og búin að trúlofa okkur og alles bara frábært líf:) en ætlaði bara rétt að kasta kveðju áður en ég fer í háttinn skóli klukkan 8 í fyrramálið *dæs* en jæja góða nótt allir

--Þóra Elín Skólastelpa!!! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 14:22:55 / Þóra Elín

Rúntur, hetjudáðir og fastur bíll!!!!

Já já já í gær var svona gaman hjá mér og Axel eftir að hann var búinn að vinna fórum við yfir á Eskifjörð að borða og svo á rúntinn enduðum á því að fara einhverja jeppavegi sem við hefum eiginlega tæknilega séð ekkert átt að komast á toyotunni sko en viti menn toyotan getur ALLT!!! Við fórum út fyrir Eskifjörð og í sveitina þar og svo eitthvað enþá lengra út og vorum búin að keyra alveg heillengi þá festum við bílinn í grasi haha frekar fyndið svona en svo fórum við bara og snérum við og héldum áfram eitthvað og þá fórum við niður í vaðlavík sem er ekkert smá fallegur staður!!! og svo á leiðinni til baka ætlaði axel að vera hetja og bjarga fugli sem var að labba yfir götuna og var ekkert að flíta sér og ætlaði að sveigja framhjá fuglinum en það heppnaðist nú ekki betur en það að fuglinn varð undir bílnum og dó:( þetta var ekkert smá gaman hjá okkur en svo núna á morgunn erum við að fara að vera með Brynjar Óla og svo á Föstudaginn er það sumarbústaður fengum sér bústað útaf fyrir okkur!! algjör snilld:D en jæja látum þetta gott heita í bili!!

--Þóra Elín 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 22:12:06 / Þóra Elín

6 dagar!!!!

jáhh núna er bara ekkert að frétta nemég er bara á fulu að pakka niður og fara að flytja eftir 6 daga pæliði í því:D hlakka svo til verður æðislegt etta líf eftir það en annas hefur ekkert gerst hérna í borginni nema ég er komin með bílprófið og fer alveg að fara að hætta í vinnunni og eitthvað svona:P hlakka svo til að hætta í þessari SKÍTA vinnu þetta er ekki mönnum bjóðandi sko

en jæja annars ætlaði ég bara að láta vita að ég er á lífi=)

latum þetta vera nó í bili:D

Elska þig Axel minn:*** just so you all can know!!!! á sko án efa besta kærasta sem hægt er að eiga!!!!  


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
8. febrúar 2012
Klukkan